Baldur A. Sigurvinsson
  || Heim ||
   
 
Um vefinn

Tilgangur vefsins, Saga, menning, samfélag, er að miðla til nemenda á unglingastigi grunnskóla - og allra annarra sem áhuga kunna að hafa - þekkingu á sögu Íslands og umheimsins, menningu okkar og hinna ásamt því lífi sem við lifum í ótal samfélögum um heim allan. Við fyrstu sýn virðist mannkyn vera harla ólíkt hvort öðru en við nánari sýn kemur í ljós hvað draumar okkar og þrár eru harla líkar.

Notendum þessa vefs er velkomið að hala niður, nota og prenta út efni af henni eins og þeim lystir. Eina skilyrðið sem ég set er að viðkomandi virði höfundarrétt á því efni sem notað er.

Með kveðju,

Baldur A. Sigurvinsson
baldursig@rimaskoli.is